31. mars 2009

Frú Ráðunautur óskast

Í október 1995 tilkynnti Frú Vigdís Finnbogadótir forseti að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs í embætti. Af því tilefni var tekið viðtal við frúnna sem birtist í Mogganum. Hér er smá brot:

Frú Vigdís sagðist hafa tekið ákvörðun sína fyrir löngu og starfsfólk hennar og trúnaðarvinir hefðu vitað um hana lengi. Aðspurð hvað hefði ráðið þessari ákvörðun, sagði forseti: „Ég lít svo á að ég hafi unnið þessari þjóð af heilum hug og heilindum í þessi ár. Ég hef þokað nokkuð áfram þeim málum, sem mér voru efst í huga í upphafi kjörtímabils, og ég er enn á góðum járnum, svo mig langar kannski til þess að vinna að öðrum verkefnum líka." Þar nefndi forseti meðal annars áhuga sinn á margmiðlun og nýtingu hennar til góðs fyrir þjóðina.

Gárungarnir (m.a. sá sem ég bý með) hlógu að áætlunum Vigdísar á margmiðlunarsviðinu. Fannst þetta fyndið tilhugsunar - gamli forsetinn sem fram að þessu hafði aðallega verið að gróðursetja birkiplöntur og skrifa formála í viðhafnarbækur ætlaði kannski að fara að moggablogga? (Moggabloggið var vissulega ekki til á þeim tíma, en þetta er fyndnara svona)

Eins og allir vita er hún Vigdís okkar sérlegur verndari íslenskrar tungu (nenni ekki að gúggla hvort hún sé það á pappírunum, en hún er það allavega í mínum huga).

Að þessu sögðu er ekki skrýtið að mér verði hugsað til Frú Vigdísar þegar ég reyni að horfa á hið ömurlega vefsjónvarp RÚV, ýmist hljóðlaust, myndlaust nema hvort tveggja sé, hlaða niður streymisskjölum sem tekur yfirleitt tvöfaldan þann tíma sem tekur að hlusta/horfa og RÚV auglýsir á sama tíma eftir málfarsráðunauti. Hún væri rétt kona á réttum stað.

25. mars 2009

Coco og kamellinn

Þetta vona ég að komist aldrei í tísku.

Því síður þetta.

2. mars 2009

Liður C

Þá er febrúarhefti O-magazine nánast lesið upp til agna. Eitt af því sem mér þykir skemmtilegt við tímaritið er stærðin á því. Það er í amerískri stærð, s.s. ekki í metrakerfinu, og þar af leiðandi svoldið framandi. Blaðinu fylgdi ilmvatnsprufa, Romance frá Ralph Lauren og blaðið ilmar allt!
Þema mánaðarins var lukkan og áherslan lögð á það að hver er sinnar gæfu smiður. Stærsti kaflinn í blaðinu fjallaði um hvernig megi stýra lukkunni í átt til sín og laða hana að sér. Samt alveg Secret-free.

Fastir þættir Dr. Phil (geðræktin) og Suze Orman (fjármálin) voru ákaflega fróðlegir eins og alltaf og tískan og uppskriftirnar spennandi. Dr. Phil bretti upp ermarnar (í alvöru, hann er með uppbrettar ermar á myndinni!) og leysti úr vanda konu nokkurrar sem sendi bréf. Sú kvartaði sáran undan manni sínum sem hafði alltaf sýnt henni vanvirðingu og sett út á holdafar hennar, þegar hún var í raun í flottu formi. Fór úr stærð 6 (US) upp í 8 og hann neitaði að sofa hjá henni! Svo eignast þau nokkra krakka og hún stækkaði heldur betur, bætti á sig 50 pundum og manninum býður við henni. Svo er hún bara eitthvað á Facebook og hittir gamlan college flame sem er alveg sama um aukakílóin (eins og segir í laginu: 'En hún er passleg fyrir mig!'). Nú eiginmaðurinn kemst að þessu og þykist nú allt í einu vera svaka skotinn í konunni sinni. Dr. Phil varð brjálaður! Hann segir þetta týpíska karlahegðun; um leið og einhver sýnir dótinu þínu áhuga þá verður dótið skyndilega miklu meira spennandi. Hann ráðlagði konunni að leggjast undir feld og íhuga skilnað.

Uppskriftirnar voru frá bakaríi í New York sem kallast Baked. Ég ætla pottþétt að prófa eitthvað frá þeim, til dæmis rauðu súkkulaðimuffinsin.

25. febrúar 2009

Fréttatilkynning

Hér verður brátt bloggað af krafti!
Meðal efnis:
-Heilahvelin: Er ég vinstri eða hægri?
-Hin skemmtilega þraut að pakka niður 10 kg fyrir vikulangt ferðalag.
-Umfjöllun um nýjasta O magazínið á heimilinu.
-Sumar í Osló kallar á sundfatatízkuhugleiðingar.

Í öðrum fréttum er það helzt að Smári bakaði í kvöld, alveg hreint dásamlega brauðhleifa. Sænski Camembertinn bráðnaði skemmtilega á dýrindis brauðinu. Smári þvertekur fyrir að hefja moggablogg a la matarbloggarinn.

23. janúar 2009

Febrúar

Ég var að sjá að febrúar gengur upp í ár! Byrjar á sunnudegi og lýkur á laugardegi. Laugardagarnir eru 7., 14., 21. og 28. Mars er líka næstum eins, laugardagarnir eru með eins númer.

21. janúar 2009

Eiturbras

Smári bakaði brauð. Það var eitrað. Ég ætla ekki einu sinni að gefa dúfunum það.

1. desember 2008

Wow, wow..

Hvað er Facebook búin að gera mér?
Nú fer ég næstum aldrei á bloggsíður!
Talandi um að fara úr öskunni í eldinn..

ooooo

Ég elska að gera lista og innblásin af nýkeyptu desembertölublaði O magazine ætla ég að gera lista eins og Oprah gerir alltaf fyrir jólin, svona Sigga's favourite things.

The S list

-Askja með fallega skreyttum kortum og umslögum sem má nota við ýmis tækifæri; brúðkaup, afmæli, fæðingar. Mamma á alltaf svoleiðis í gjafaskápnum. Til eru gjafakortaöskjur skreyttar verkum eftir ýmsa myndlistarmenn, þið vitið, Van Gogh, Gustav Klimt og Skagenmálarana.

-Aðventustjaki/-skál. Hugsaðu þér gleðina sem ríkir á næstu aðventu þegar aðventustjakinn verður tekinn fyrstur upp úr jólaskrautskassanum og viðkomandi uppgötvar að hann þarf ekki að hafa samviskubit yfir að hafa ekki búið til aðventukrans þetta árið!

-Náttföt. Það er æðislega gaman að fara í ný náttföt á jólanótt. Reyndu að finna einhver spes náttföt, ekki endilega úr Hagkaup, sem gleðja augað og andann.

-Áskrift að tímariti. Persónulega mæli ég gegn áskrift að Nýju lífi og Séð og Heyrt, ömurleg blöð svona heilt yfir. Skemmtileg blöð að mínu mati eru t.d. O magazine og Heima er bezt en það er sniðugt að finna eitthvað blað sem passar við áhugasvið hvers og eins. Fyrir þann sem er að gera upp íbúðina sína eða er nýfluttur í hús er Bo bedre sniðugt. Veiðimaðurinn gæti viljað Jakt og Fiske eða Guns & Ammo og handavinnukonan fær Prjónablaðið Tinnu.

-Rafræn farangursvigt. Ég las um daginn að vigtir á flugvöllum væru stilltar af á þriggja ára fresti að meðaltali. Það er því gott að geta þrætt og haft rétt fyrir sér ef taskan þín er í raun 21 kíló en ekki 28. Á þessari sniðugu heimasíðu má finna flottar hugmyndir að gjöfum, þar á meðal farangursvigtina. Tilvalið fyrir ferðalanga!

-Silfursafnið hans Palla.

-Hátíð fer að höndum ein. Íslenskasta jólaplatan.

-Föt og skór. Ég nota fötin mín fáránlega lengi og mikið. Það koma göt á olnbogana á peysunum og allt! Það er því fyrirtaks hugmynd fyrir Smára að gefa mér fallega skó eða föt. Og ekkert HM drasl takk fyrir pent.

Gleðileg jól!